TÝRA kynnir
TÝRA býður fjárnámskeið í samvinnu við Símenntun Háskólans á Akureyri/SMHA sem ber heitið KVINNA: Ósköpin öll og krafturinn á breytingaskeiðinu. Verkefnastýring í lífi og starfi
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái greinagóða yfirsýn yfir nýtingu verkefnastýringar í lífi og starfi út frá hormónabreytingum ásamt þekkingu á nýjustu rannsóknum, verkfærum, stuðningi og lausnum í tengslum við samfélagslegar aðstæður í kringum hormónabreytingar og breytingaskeiðið.
Sérstakur gestakennari er Aðalheiður Jensen, eigandi Tilveran heilsusetur og yfirþjálfari.
TÝRA leggur sérstaka áherslu á eflingu kvenna í lífi og starfi og vinnur að ýmsum verkefnum því til stuðnings. Þar má nefna rannsókn um áhrif breytingaskeiðs í atvinnulífinu sem var unnin af Halldóru Rut Baldursdóttur, verkefnastjóra, í samvinnu við TÝRU og GYNAmedica. Einnig vinnur TÝRA að hönnun og útgáfu á snjallforriti sem þjónustar konur í atvinnulífinu með áherslu á breytingaskeiðið sem hlaut m.a. sprotastuðning úr sjóði Atvinnumála Kvenna. Með aukinni vitundarvakningu um málefnið eflist kraftur kvenna og mikilvæg þekking á kvenlegri heilsu.
Krafturinn sem breytingaskeiðið ber í skauti sér
Áttu reynslusögu af upplifun þinni í tengslum við tíðahringinn, forbreytingaskeiðið, breytingaskeiðið og/eða tíðahvörf? TÝRA verkefnastýring safnar saman skemmtisögum, kraftasögum og reynslusögum kvenna af m.a. heilbrigðiskerfinu, viðmóti í samfélaginu, viðmóti hjá eldri og reyndari konum (mæðrum, frænkum, ömmum og öðrum), hugsanlegri skömm sem konur og samfélagið upplifir, fordómum, persónulegum upplifunum í atvinnulífinu, fyrirtækjamenningu o.fl.
Við viljum heyra þína sögu!
Gætt verður nafnleyndar nema annað sé tekið sérstaklega fram.
Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga
*Áætla má að nafnlausar sögur verði birtar í útgefinni bók, verkefnum við háskóla, fjölmiðlum, á vefsvæði TÝRU og GynaMEDICA sem og í fyrirlestrum, ráðstefnum og fleiri miðlum með þeim tilgangi að valdefla konur og virkja heilbrigðiskerfið.